Carnitas - tacos með tættu svínakjöti
- 90 Mins
- 8 Ingredients
- Medium
Margir eru hrifnir af "pulled pork" eða tættu, hægelduðu svínakjöti og nú er upplagt að prófa mexíkósku útgáfuna! Í henni er búin til fylling fyrir mjúkar tortillakökur með hægelduðu svínakjöti sem kryddað hefur verið með burrito-kryddblöndunni og bragðbætt með appelsínubragði. Ofan á kjötið setjum við mango, salsa og sýrðan rjóma og kvöldverðurinn er tilbúinn!
What to shop
Serves {0} portions
Pulled pork |
---|
600 g svínahnakkni, úrbeinaður |
1 pokar Santa Maria Burrito Spice Mix |
1 appelsína, líka safinn |
álpappír |
Meðlæti |
---|
1 pk Santa Maria Tortilla Original Small 8-pack |
1 krukka Santa Maria Taco Sauce Medium 230 g |
1 dl sýrður rjómi |
1 ferskt mangó (eða 100 g frosið mangó) |
1 búnt ferskt kóriander |
How to prepare
- Hitið ofninn í 150°C.
- Leggið kjötið á álpappír, passið að örkin sé vel stór.
- Nuddið kryddblöndunni í kjötið og pakkið því vel inn í álpappírinn. Steikið í ofninum í u.þ.b. eina og hálfa klukkustund.
- Takið kjötið úr ofninum og rífið það niður með tveimur göflum.
- Rífið ysta lag appelsínunnar með rifjárni yfir kjötið; kreistið líka safann úr appelsínunni og blandið saman við kjötið.
- Skerið mangó í litla bita.
- Berið þessa "carnitu" fram á mjúkri tortillaköku (minni gerðinni) ásamt mangó, taco-sósu og sýrðum rjóma. Saxaður kóriander passar líka vel með þessu.